Miðvikudagur, 4. mars 2009
Áríðandi tilkynning!
Ég vil minna ykkur á frábæra útvarpsdagskrá sem send verður frá Journalisthøjskolen á morgun, fimmtudaginn 5. mars. Nálgast má þættina á heimasíðu skólans.
Sérstaklega vil ég benda á þáttinn sem verður sendur út milli kl. 11 og 12 að íslenskum tíma. Þemað í honum eru draugar, en þáttastjórnendur hafa tekið viðtöl við fólk víða að í Danmörku og heimsótt hið fræga draugabæli Moesgård Museeum að næturlagi.
Já kæru vinir! Þetta er búin að vera ansi hressileg vika!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 9. febrúar 2009
Vefur DV klessukeyrður
Það er bara allt að verða vitlaust heima núna.
Maður sakaður um að hafa keyrt á annan mann á vef DV -hvorki meira né minna!
Vefur Dv þá vætnanlega klessukeyrður?
Hér má lesa meira um ævintýrið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 5. febrúar 2009
fjúkandi fjúríus forstjóri
Það kom illa við kaunin á forstjóranum, bloggið sem sagði frá 14 milljónakróna nýjabílnum sem forstjórinn fékk sér á kostnað fyrirtækisins. Á sama tíma skar hann niður launin hjá kollegum sínum og flautaði af jólahlaðborðið, gaf líka bara litlar jólagjafir. En svakalega samt sáttur við nýjabílinn.
Agalega mikið eitthvað þankagangur ala 2007.
Bruðl og stórir bílar, upphæðir sem ekki þola dagsljósið -og fólk sem fær reisupassann ef það er ekki sammála.
Var það ekki svona þankagangur sem fólk hefur verið að mótmæla síðustu vikurnar? Ég hélt það.
Það er annars þetta sem ég hef aðeins óttast í kjölfar kreppunnar. Vinnuveitendur sem færa sig upp á skaptið, reka fólk í stað þess að svara gagnrýni.
En mér er svosem sama. Mig hefur alltaf langað í Golf, Gumma í Jaris. Ég geri ráð fyrir að það verði ekki mikið deilt um Golfinn úr þessu.
All the best!
Katrín
|
Bloggari rekinn fyrir skrif |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Elsku Salóme
Hjá okkur er allt í sómastandi! Erum bara að byrja "að njóta þess að vera í útlöndum" -fögnum líka hækkandi íslenskri krónu og soonna.
Núna erum við líka komin á milljón í dönskunám. Gummi skráði sig í dönskuskóla fyrir jól og ég skráði mig í dag. Fór í stöðupróf sem kom satt að segja svo vel út að mér var næstum úthýst, enda skólinn fyrir útlendinga sem ætla að læra dönsku en ekki þá sem kunna hana les: svona dönskusnillinga eins og mig ;) En ég fæ að dúllast með í efsta stiginu.
Stefnan annars tekin á Lund um helgina og síðan í skólann á mánudaginn!
TAkk annars fyrir kommentið!
Kv.
Bónusbarn
Ps. aflétti nú aaaaðeins íslensku fréttabanni á heimilinu enda ekki annað hægt en að fylgjast með þessari rúllettu sem hefur verið í gangi. ..og hvað er líka málið með þessa milljarða alla?? hvaðan komu þeir og hvernig getur það eiginlega staðist að þeim var bara fleigt á milli eins og brennibolta?? ég vissi ekki að það væru til svona mörg núll til á Íslandi -en ég er nú líka bara lítil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Tímamót
Í fyrsta skipti í laaangan tíma er ég stolt af landi mínu og þjóð. Það lá við að ég væri byrjuð að kynna mig sem Færeying hérna á danskri grund enda skilningur hjá Dönum á öllu þessu sullumbulli á Íslandi ansi takmarkaður.
Svona var eitt samtal umd daginn.
Ég: Nei fjölskyldan mín er ekki að svelta, foreldrar mínir eru heppnir, enda halda bæði vinnunni.
Dani: hmm.. og hvernig er ástandið??
Ég: tja.. það hefur raunar ekkert gerst. Það hrundu bara þrír bankar en síðan hefur allt nánast staðið í stað. Ríkisstjórnin og stjórnendur Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins sitja enn..
Dani mjög hneykslaður): HA!! hvernig getur það verið (löng ræða)!!! Hvað varð líka um alla fjölmiðlana.. gerðu þeir ekkert áður en allt hrundi? hafa þeir ekkert verið sakaðir um lélega blaðamennsku að hafa ekki bent á þetta áður? (óvænt spurning verð ég að segja)
Ég: Sko.. þeir hérna.. hmm.. voru sko í eigu stórra fyrirtækja sem áttu einn af bönkunum sem hrundu (fannst þetta frekar hallærislegt þannig að ég varð að benda á Moggann). Nema einn miðill... en hann er reyndar bendlaður við flokk.. eða sko var það.. og sá flokkur er einmitt í stjórn núna... (orðið frekar vandræðalegt)
Dani (ennþá hneykslaður og ferlega hissa).. Vá!! Þetta minnir mann bara á Ítalíu og Berluskóní!
Maður nennir ekkert að standa í svona neitt lengi, þannig að ég var bara hætti að móðgast þegar ég var spurð að því hvort ég væri Rússi, Færeyingur eða Finni. Hef bara kinnkað kolli.
Þangað til í dag.
Loksinsloksins finnst manni eitthvað vera að gerast!!!
|
Mannfjöldi á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 2. janúar 2009
Að vera „dæmd til sauða“
Það er auðvitað óttalega dramatískt að verða hugsanlega dæmd til dauða enda mál kínverskra mjólkurframleiðanda mjög alvarlegt.
En að vera „dæmd til sauða“ er alveg fordæmalaust -rétt eins og yfirlesturinn hjá mbl.is.
Hérna er lokaklausan í greininni eins og hún leit út þegar ég las hana:
Tian Wenhua, fyrrum forstjóri fyrirtækisins Sanlu, hefur lýst sig seka um að selja falsaða vöru fyrir rétti og er talið að hún muni hljóta lífstíðar fangelsisdóm vegna málsins. Áður hafði verið talið líklegt að ún yrði dæmd til sauða vegna málsins en það virðist nú ólíklegt. Sautján voru ákærðir vegna melamín-mála í Kína í síðustu viku
Kærar kveðjur
Katrín
|
Biðjast afsökunar með SMS |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
Vaxandi vinsældir með falli krónunnar
HRun íslensku krónunnar skilar sér í miklum vinsældum eina Íslendingsins í Cand. Public hold 2. Það vill svo vel til að það er ég.
Nú þegar hafa þrír bekkjarfélagar mínir komið til mín og spurt um ýmsar praktískar upplýsingar varðandi landið. Ein pantaði nú bara stefnumót -hitti hana seinna, hún ætlar nefnilega að fara með kærastanum sínum til landsins í lok janúar og þarf smá hjálp til að velja sér hótel og svona.
Síðan hef ég líka fengið öðruvísi spurningar. Svona út í bláinn um eitthvað varðandi landið sem þeim finnst að ég eigi að vita. Í dag var ég spurð að því hvaðan Íslendingar koma upphaflega. Tja.. hmm... þetta voru náttúrulega víkingar sem var útskúfað frá hinum Norðurlöndunum eða þá ætluðu til Skotlands og hittu ekki betur. Vildi nú samt ekki viðurkenna að Íslendingar væru komnir af glæponum og heimskingjum þannig að ég bakkaði náttúrulega með þessa útskýringu.
Fór annars á fund í dag um skiptinám. Sé fátt því til fyrirstöðu að við kötuhjúin getum bara flutt heim í vor og ég bara tekið skiptinám á Íslandi. Verð nú samt að sækja um, fá samþykki og vesenast en sýnist þetta eiga að geta gengið upp. Vííi!!!
Katrín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 18. nóvember 2008
Dagur framkvæmda!
Í dag á ég frí og þar með byrjar mín helgi. Fékk nefnilega að skila verkefni bæði á sunnudeginum og líka á mánudegi og helgin þessvegna gulltryggð fyrir framan tölvuna.
En í dag á ég frí og ég er búin að ákveða smá þema!! Ég ætla að reyna að gera allt sem ég hef látið sitja á hakanum, þið vitið þessir drasllitlu hlutir sem bara safnast upp. Núna er ég t.d. búin að panta tíma hjá lækni, sækja um stúdentakort og panta jólaklippinguna. Svo er ég nú líka að blogga, það telst sem atriði á listanum.
Best ég setji inn smá myndir líka.
Hér er ein fyrir mömmu af þv að hana langaði svo að sjá nýju ljósakrónuna okkar:
Hérna er önnur fyrir Öldu ömmu hans Gumma en hún sendi okkur tátiljur sem ylja okkur kötuhjúunum á hverjum degi!
KVeðja
Nírtak
Ps. Síminn minn.. það er nú eitt af þessum atriðum sem ég hef verið að trassa. Heimasíminn minn er: +45 35 13 74 59. Rosa sniðugt að setja þetta númer sem vin í útlöndum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 1. nóvember 2008
Bílabruni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 28. október 2008
Ekki sú eina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)



gaukurlaukursparibaukur
audurh
hjordisalda
gummi