Föstudagur, 2. janúar 2009
Að vera „dæmd til sauða“
Það er auðvitað óttalega dramatískt að verða hugsanlega dæmd til dauða enda mál kínverskra mjólkurframleiðanda mjög alvarlegt.
En að vera „dæmd til sauða“ er alveg fordæmalaust -rétt eins og yfirlesturinn hjá mbl.is.
Hérna er lokaklausan í greininni eins og hún leit út þegar ég las hana:
Tian Wenhua, fyrrum forstjóri fyrirtækisins Sanlu, hefur lýst sig seka um að selja falsaða vöru fyrir rétti og er talið að hún muni hljóta lífstíðar fangelsisdóm vegna málsins. Áður hafði verið talið líklegt að ún yrði dæmd til sauða vegna málsins en það virðist nú ólíklegt. Sautján voru ákærðir vegna melamín-mála í Kína í síðustu viku
Kærar kveðjur
Katrín
|
Biðjast afsökunar með SMS |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



gaukurlaukursparibaukur
audurh
hjordisalda
gummi
Athugasemdir
Aumingja konan, hvernig ætli dómur það sé... að vera af öðru sauðahúsi?
Nýarskveður til ykkar skötuhjúa með þökk fyrir það gamla ;)
Gréta Bergrún (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 14:30
Jæja krakkar mínir. Ætlaði að bregðast við nýrri færslu sem hefur bara ekki birst. Veit ekki hvort ég hafi verið dæmdur til sauða þar sem ég finn þá ekki í minni sveit! En til lukku með munnlega færni þína í blaðamennskunni mín kæra Katrín Tinnna - og bestu kveðjur til þín Guðmundur minn.
pabbi
hreiðar (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 21:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.