Fimmtudagur, 5. febrúar 2009
fjúkandi fjúríus forstjóri
Það kom illa við kaunin á forstjóranum, bloggið sem sagði frá 14 milljónakróna nýjabílnum sem forstjórinn fékk sér á kostnað fyrirtækisins. Á sama tíma skar hann niður launin hjá kollegum sínum og flautaði af jólahlaðborðið, gaf líka bara litlar jólagjafir. En svakalega samt sáttur við nýjabílinn.
Agalega mikið eitthvað þankagangur ala 2007.
Bruðl og stórir bílar, upphæðir sem ekki þola dagsljósið -og fólk sem fær reisupassann ef það er ekki sammála.
Var það ekki svona þankagangur sem fólk hefur verið að mótmæla síðustu vikurnar? Ég hélt það.
Það er annars þetta sem ég hef aðeins óttast í kjölfar kreppunnar. Vinnuveitendur sem færa sig upp á skaptið, reka fólk í stað þess að svara gagnrýni.
En mér er svosem sama. Mig hefur alltaf langað í Golf, Gumma í Jaris. Ég geri ráð fyrir að það verði ekki mikið deilt um Golfinn úr þessu.
All the best!
Katrín
|
Bloggari rekinn fyrir skrif |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



gaukurlaukursparibaukur
audurh
hjordisalda
gummi
Athugasemdir
Sammála þér ,þvílík þversögn hjá ráðamönnum Toyota,þetta á eftir að bíta þá í hnakkan ekki góð auglýsing hjá þeim.Vonandi ertu að læra Rannsóknarblaðamennsku,ekki veitir af hér heima á fróni.
Númi (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 00:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.